“…Tónlistarmenn og samstarfsfólk vinnur að sköpun tónlistar, tónlistarflutningi og dreifingu tónlistar. Afurðin, tónlistin sjálf, hefur baeði menningarlegt og efnahagslegt gildi fyrir einstaklinga, fyrirtaeki og stofnanir innan tónlistargeirans sem og mikla þýðingu fyrir þjóðina í heild (Caves, 2000;Throsby, 2003;Towse, 2010;Ágúst Einarsson, 2013). Viðfangsefni þessarar greinar er að skoða tón-listarlífið á Íslandi með það fyrir augum að fá úr því skorið hvort hér á landi séu skilyrði uppfyllt fyrir tilvist tónlistarklasa (e. music cluster) og í framhaldinu raeða stöðu klasans og áskoranir hans.…”