Hagnýting persónuupplýsinga á Facebook hjá eftirlitsstofnunum Sigurður G. Hafstað, lögfraeðingur og stjórnsýslufraeðingur, Sýslu-maðurinn á höfuðborgarsvaeðinu Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Félags-og mannvísindadeild Háskóla Íslands
ÚtdrátturMarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig upplýsingar, sem aflað var á Facebook, vaeru nýttar við opinbert eftirlit með einstaklingum hér á landi. Tilgangur rannsóknar var meðal annars að varpa ljósi á formlega og óformlega notkun slíkra upplýsinga og greina umfang hennar. Við rannsóknina voru tekin hálfstöðluð viðtöl við sérfraeðinga sem störfuðu hjá tilteknum úrskurðar-eða eftirlitsstofnunum. Þá átti sér stað greining á stjórnvaldsúrskurðum til þess að kanna hvernig stofnanir byggðu ákvarðanir á upplýsingum sem aflað var á Facebook. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að upplýsingar á Facebook hafa verið nýttar við opinbert eftirlit hér á landi. Slíkar upplýsingar hafa verið formleg ákvörðunarástaeða í einhverjum tilvikum. Þá kom í ljós að stofnanir, sem tóku þátt í rannsókninni, höfðu einnig nýtt upplýsingar með óformlegum haetti meðal annars til þess að fá betri tilfinningu fyrir tilteknum málum, bera kennsl á einstaklinga, afla upplýsinga um ferðir þeirra, eða til þess að hafa uppi á fólki.