Frá efnahagshruninu 2008 hefur niðurskurður fjármagns leitt til þess meðal annars að minna svigrúm hefur gefist til að takast á við brýn úrlausnarefni í skólastarfi. Vísbendingar eru um að líðan kennara hafi versnað frá árinu 2008 og því er mikilvaegt að kanna hvort breytingar hafi orðið á einkennum kulnunar frá fyrri rannsóknum meðal grunnskólakennara á árunum 1999 og 2005. Sami spurningalisti og notaður var í fyrri rannsóknum, Maslach Burnout Inventory (MBI-ES) var lagður fyrir 515 grunnskólakennara í Reykjavík. Konur voru 85%, karlar 15% og svarhlutfallið var 38%. Einnig voru lagðir fyrir listar sem meta annars vegar örmögnunarröskun (The Karolinska Emotional Exhaustion Scale -KEDS) og hins vegar starfsaðstaeður ( Job Demands-Resource Scale -JDRS). Í ljós kom að einkenni kulnunar meðal grunnskólakennara hafa aukist frá því fyrir hrun, einkum tilfinningaþrot, en grunnskólakennarar meta starfsárangur enn nokkuð mikinn og finna varla til hlutgervingar gagnvart nemendum. Um 42% grunnskólakennara maeta greiningarviðmiðum fyrir örmögnunarröskun samanborið við 31-38% félagsmanna BHM. Hvað starfsaðstaeður varðar meta grunnskólakennarar álag mikið en telja sig hafa taekifaeri til að vaxa í starfi og fá stuðning frá stofnun, t.d. stjórnendum. Grunnskólakennarar finna til starfsöryggis en þeir hafa ekki mikla möguleika á framgangi í starfi. Álag reyndist hafa sterkust tengsl við kjarnaeinkenni kulnunar, tilfinningaþrot, í líkani Maslach og einnig örmögnunarröskun. Möguleikar til vaxtar í starfi og stuðningur stofnunar virðast hafa verndandi áhrif. Niðurstöður sýna að kulnun hefur aukist og mikilvaegt er að huga að starfsaðstaeðum grunnskólakennara, sérstaklega of miklu álagi. Ástaeður þessa mikla álags geta verið margvíslegar en hugsanlega má rekja þaer til hegðunarvanda í nemendahópi, skorts á viðeigandi úrraeðum í málefnum nemenda sem veita þarf sérstakan stuðning, aukins foreldrasamstarfs og almenns virðingarleysis gagnvart kennarastarfinu í samfélaginu.Efnisorð: Kulnun, grunnskólakennarar, starfsaðstaeður, heilsa og vellíðan, örmögnunarröskun, opinberir sérfraeðingar
InngangurUmraeða um kulnun í starfi og veikindi starfsfólks henni tengd hefur verið í brennidepli hérlendis og hefur meðal annars snert kennarastéttina. Óviðunandi starfsaðstaeður, langvarandi álag og streita getur leitt til kulnunar og orðið ástaeða þess að kennarar hverfa frá störfum í lengri eða skemmri tíma eða leita sér annarra starfa. Á síðustu 18 mánuðum leituðu 208 kennarar til VIRK -starfsendurhaefingarsjóðs og 65% þeirra greindu frá því að starfsþrot/kulnun vaeri ein af ástaeðum fjarveru þeirra frá vinnu (Svandís Nína Jónsdóttir, munnleg heimild, 9. október 2019).