Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áhrif þjálfunar á orðaforða barns á þriðja ári, sem seint var til máls. Einn þátttakandi var í rannsókninni. Við upphaf rannsóknarinnar var hann 30 mánaða, notaði rúmlega 160 orð og var ekki farinn að tengja saman orð í setningar. Þátttakandinn var valinn af hentugleika. Þjálfunin var byggð á fyrirlögn fyrir fram ákveðinna markorða sem þjálfuð voru baeði á fjölbreyttan hátt og með ákefð. Einnig voru valin samanburðarorð sem ekki voru þjálfuð. Þjálfunin fór fram tvisvar í viku í leikskóla barnsins og voru þjálfunartímar 14 talsins. Niðurstöður leiddu í ljós að almennur orðaforði barnsins, sem maeldur var með staðlaða málþroskaprófinu Orðaskil, jókst yfir þjálfunartímabilið umfram það sem vaenta mátti vegna almenns þroska. Maelingar sýndu að barnið notaði markorðin meira en samanburðarorðin, baeði heima og í þjálfunartímum, og að notkun á orðunum jókst eftir því sem leið á þjálfunina. Sú aukning sem varð á orðaforða barnsins hélst mánuði eftir að íhlutun lauk. Mikilvaegt er að bera kennsl á seinkun í málþroska eins snemma og kostur er. Þegar búið er að bera kennsl á barn sem seint er til máls þarf í framhaldi að veita því viðeigandi örvun eða íhlutun, en þessi rannsókn bendir til að slík þjálfun geti haft góð áhrif. Sambaerileg rannsókn hefur ekki verið gerð áður á Íslandi.Efnisorð: Málþroski, börn sem eru sein til máls, orðaforði, snemmtaek íhlutun.